Þyngdarstjórnun / Íþróttir

Jákvætt hugarfar og rétt forgangsröðun er lykilinn að góðum árangri. Það að setja sér raunhæf markmið og sú hugsun ein að vera búin að ákveða að ná árangri er stórt skref í átt að breyttum lífsstíl og betri líðan. Taktu ákvörðun um að gera þitt allra besta og ná framúrskarandi árangri. Vert er að verðlauna sig er vel gengur með því að kaupa sér flík, snyrtivörur eða hvert annað dekur. Matur er manns megin ! Líkaminn þinn þarf orku, rétt eins og bíllinn þinn þarf eldsneyti til þess að geta tekist á við daglegt líf. Mikilvægt er að við temjum okkur hollt og gott mataræði. Með því að borða reglulega, allt að sex sinnum á dag, kemur þú í veg fyrir að það hægi á efnaskiptum líkama þíns, hungurtilfinningu,orkuleysi og öðru sem því fylgir. Gott er að nota fæðubótarefni til að tryggja að öll vítamín skili sér í kroppinn. Reynslan hefur kennt mér að fólk sem hefur borðað reglulega og hæfilega stóra skammta í senn hafi náð bestum árangri í þyngdarstjórnun. Mikilvægt er að halda dagbók og skrá skilmerkilega í hana dag hvern en það gerir þig meðvitaðri um mataræði þitt. Kolvetni, prótein og fita eru okkar helstu orkugjafar. Nauðsynlegt er að jafnvægi ríki á milli þeirra.
Þyngdarstjórnun Vörur Atvinna Söluaðilar
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun